Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Dett'í prufzl?

08. desember 2010 klukkan 17:33

LMA vill byrja þessa bloggfærslu á að þakka Knudsen fyrir frábært starf á árshátíðinni. Atriðið hafði í það minnsta ótvírætt skemmtanagildi.

Skráningar eru hafnar fyrir stóru leiksýningu LMA sem verður byggð á hárinu. Garún, okkar frábæri leikstjóri, mun taka að sér að breyta verkinu svo að nordiska getur vonandi ekkert um það sagt. Það er svosem ekki margt annað að segja.

Garún er ekki óreynd á þessu sviði því m.a. í breytti hún Grease í hryllingssöngleik í fyrra sem sló algerlega í gegn (hún var þá að leikstýra FSU)

Prufur eru semsagt að fara í gang og fyrir sýninguna mun vanta leikara, tónlistarmenn, sminkur, búninga og leikmyndahönnuði og aldrei að vita nema dansarar og söngvarar slæðist með.
Það er fátt skemmtilegra og betra til að kynnast nýju fólki en að taka þátt í uppsetningu LMA og við viljum endilega fá sem fjölbreyttastan hóp af fólki

Í prufum mun að öllum líkindum þurfa að fara með stuttan texta og syngja eins og eitt lag. Í herberginu verður enginn nema þú, Garún, tónlistarstjóri og JÁRNFRÚIN. Það er því ekki mikið að óttast.

Kraftjákvæðni fyrir þessu eða? Þurfum við að ræða það eitthvað?

Af Drangeyjarför, dópistum og öđru

05. nóvember 2010 klukkan 21:24

hæhó,
LMA fór í Drangeyjarferð í dag, eða í það minnsta nokkrir félagar. Þar lékum við menntaskólanema sem var kallt. Af einhverjum átstæðum áttu fáir í minnstu vandræðum með að túlka hlutverkið. Einhver snillingur tók meira að segja túlkunina á annað stig og lék sjóveikanmenntaskólanemasemerkallt og hlífði sjálfum sér hvergi. Karen þótti þó best fallin til að leika dópista í ferðinni en ekki verður farið nánar í ástæður þess að svo stöddu.
Við fengum eiginlega ekki að sjá Friðrik Dór vegna ákafs skeggvaxtar sem huldi mest allt andlit hans, þ.e. það sem ekki var hulið af dauða kettinum sem hann var með á hausnum.
LMA félagar höfðu hið mesta gagn og gaman af ferðinni og voru yngri félagar teknir í söngnámskeið í rútunni á leiðinni heim. Fengu þeir þar að kynnast annari hlið frökenar formanns sem spurði þá kurteislega hvort hún gæti nokkuð freystað þeirra með eins og einum dick.

Spunanámskeið LMA hefur verið í fullum gangi og hefur hingað til verið góðmennt á þau. Þar er mikið hlegið og allir skemmta sér og óþarfi að finna fyrir feimni í garð námskeiðsins. Það mun halda áfram mánudaginn 8. nóv og eru allir velkomnir, hvort sem þeir hafa mætt fyrr eður ei.
Ég held svo að stefnan sé tekin á kvöldvöku þann 10. og svo er árleg leiktubetur ferð LMA föstudaginn 12. nóvember og þar verður öðrum skólum tilkynnt um það hvað gerist ef einhver myndi skjóta þennan mikla hestamann og hvaða meðlæti menntskælingar kjósa sér þegar þeir éta í sig aðra skóla
Það verður allt awesome, ég held ég ljúgi engu þegar ég segi að MA hafi alltaf lent í efstu 4 sætunum og það er ekki ætlunin að þar verði nein breyting á.
Fylgist einnig með atriði LMA á afmæli skólans sem haldið verður hátíðlegt 11. nóvember næstkomandi.

-mikil gleði

Eitt klassískt: "asdfghjklć"

28. október 2010 klukkan 20:28

VÁ! Brjáluðum LMA fundi var að ljúka, það er allt að gerast og það er allt að gerast NÚNA.
Leiktu Betur er í uppsiglingu, afmæli skólans, árshátíðaratriði og ótalmargt fleira. Nóvember verður crazy mánuður. En þannig viljum við jú hafa það.

Einusinni var leikstjórakandídat, sem kom vel til greina í starfið, svo tók hann bara að sér að leikstýra VERKMENNTASKÓLANUM.
Vart þarf að taka fram að okkar sýning á að vera miklu flottari en þeirra. En hvaða sýning verður það? kynnuð þið að spyrja

...... fæ ég trommuslátt? ......

.........

Við vitum það ekki enn, en valið er að þrengjast og nú er virkilega farið að styttast í að það verði gert opinbert.

Fröken formaður fékk á dögunum hið merkilegasta símtal, sem kynni að veita félögum LMA áður óþekkt tækifæri til að láta ljós sitt skína, en ekki verður meira uppgefið að svo stöddu. En það er ljóst að framundan eru spennandi tímar í LMA

Give yourself to the darkside

14. október 2010 klukkan 21:56

Busi: Afhverju ertu með svona stóran munn Silja formaður?
Silja: ÞAÐ ER SVO ÉG GETI MOTHERFOKKING ÉTIÐ ÞIG Í DRASL LITLI BUSI!!!!

Nei svona án djóks, það eru vandræðalega margir búnir að skrá sig í þetta stórkostlega félag. Talið er að ástæðuna fyrir því sé helst að finna milli brjóstanna á Jenný, en þangað hefur enginn hætt sér til að leyta. Hvernig sem því er háttað er þetta hið besta mál. Ég hlakka mikið til að loka mig inni í herbergi eitt kvöldið og skrá alla meðlimi inn á þessa síðu.

Að því sögðu vil ég byrja þetta blogg á að óska Rakeli til hamingju með Eurovision ferilinn, við styðjum þig Rakel, það máttu vita.

Það var fundur um daginn. Það varð lítið úr honum vegna þess að Karen eyddi bara kvöldinu í að telja upp alla strákana sem hún er búin að fara í sl*** við (Þetta er fjölskyldubloggsíða, kommon) síðustu vikuna.
Neinei, það gerðist allveg fullt. Hjólin fara að snúast í LMA.
Það þarf samt peninga til þess, svo ef þið eruð með hugmyndir að fjáröflun (nú eða þykk veski) þá er um að gera að láta okkur vita svo við getum hlegið að því hvað þið eruð vitlaus.
Allir að fara á leiktubeturnámskeið, það verður megatöff

Núna þarf ég að fara, þetta var lélegt blogg svo ég blogga meira mjög fljótlega.

ps. það er sko hægt að skrifa athugasemdir, sem eru eins og komment á facebook, þetta blogg verðskuldar meira komment en mynd af stelpu með stút á vör verðskulda komment eins og "sæda mín;*"

Kynningarmyndband

02. október 2010 klukkan 00:10
haha lol, áður en ég byrja þessa færslu langar mig að deila með lesendum áhugaverðri sögu. Bara núna rétt áðan, þegar ég var að logga mig inná þessa síðu, ákveður tölvan að vera eitthvað treg. Vill það ekki betur til en svo að ég skrifa vitlaust notendanafn og lykilorð. Eða hvað? Það var greinilega ekki svo vitlaust því að allt í einu var ég kominn inná stjórnunarsíðu asia.bloggar.is
Skemmst er frá því að segja að það made my day og ég henti upp einu bloggi fyrir þessi grey þar sem þær voru alls ekki að vera nógu skemmtilegar í sínum bloggum. Ekkert eins skemmtilegar og þessi saga að minnsta kosti. En nóg um það

LMA kynningarmyndband var tekið upp, klippt og sýnt í síðustu viku. Sérstök kúdós fær Bryndís fyrir að redda öllu af snilld en vera samt stressaðari en hamborgarahryggur á jólunum.
Eini maðurinn sem fær meiri kúdós en Bryndís er Steinar MyMA töffari. Með um 3 bingókúlur á tímann sat hann sveittur inni í kompu í góða 12 tíma og nostraði við að klippa myndbandið og fullnægja fullkomnunaráráttunni í Brynku.
Árangurinn lét þó ekki á sér standa og við sýndum háklassa kynningarmyndband á félagakynningunni á miðvikudaginn sem var svo gott að James Cameron hringdi og vildi fá að gera kvikmynd í fullri lengd eftir því. Hann sagði að það yrði ekkert mál, hann ætti hvort eð er hérumbil allt efnið. (hér er ég auðvitað bara að plata, James Cameron hringdi ekki í alvörunni)
Eftir frammistöðu Karenar í myndbandinu hefur stjórnin tekið þá sameiginlegu ákvörðun að leikrit næsta veturs verði Avatar, byggt á sameiginlegri kvikmynd og er ætlunin að sýna það í 3D
hmmm... mér er nú aldrei sagt neitt, en ég held að það eigi að vera ársfundur eða eitthvað svoleiðis á mánudaginn. Mér dettur nú ekki í hug hvað þau ætla að gera á honum, nema e.t.v. að kjósa nýjan markaðsstjóra, en ég bíð allavega spenntur.
LMA verður með skráningu í félagið í löngu á mánudaginn og sennilega í hádeginu líka (ég komst að því að hádegi er ekki hægt að beygja í fleirtölu þannig að sómi sé að en við verðum líklega þarna í báðum)

Skráið ykkur nú öll í flotta félagið okkar svo við neyðumst ekki til að siga járnfrúnni (þetta er catching on) á ykkur

Ţetta er sumarsaga

05. september 2010 klukkan 17:57

Síðasta mánuð voru um 15 heimsóknir á þessa síðu, ég er ekki ábyrgur nema fyrir 14 þeirra þannig að LMA BLOGGAR ENN!
Það er þó meira vegna þess hversu mér leiðist heldur en af nauðsyn.
Endalaust glampar á einhvern rauðan kassa hjá message á facebook hjá mér. Þar er iðulega einhver ung snót að reyna að boða til fundar en þar eð stjórnarmeðlimir eru dreifðir um allt land hefur lítið orðið af því. Facebook hefur líka fengið að þjóna hlutverki sínu sem samskiptasíða og af því sem þar hefur verið skrifað er þetta helst.

Silja og Bryndís hafa rembst eins og morfíslið í versló við að koma á fundi við formann LA og er hann vonandi að fara að bresta á. Þar verður meðal annars rætt samstarf vetrarins og hvort ég þurfi að borga fullt verð fyrir áskriftarkort.

Nokkrar hugmyndir hafa komið fram um kynningarmyndband fyrir vesalings ráðviltu 94 módelin sem brátt munu fylla ganga skólans. Metnaður er lagður í að hafa myndbandið sem mest tælandi til að seiða til okkar unga hugi ráðviltra busa. Myndbandshugmyndirnar eru hver annari frábærari og spennandi tímar framundan í þeim efnum.

LMA tók þátt í Akureyrarvöku, ég var ekki þar og hef varist frétta en mér skilst að þar hafi farið fram heilmikið karnival. Þar tel ég víst að LMA félagar hafi verið með almenn skrílslæti eins og þeim einum er lagið.

Annars er fyrsti fundur vetrarins dagsettur fljótlega eftir skólabyrjun og allir hlakka mikið til

Ný og fróðleg könnun er hér hægra megin og svona segir maður bless á svahílí
hii si jinsi ya kusema Nyanda za Juu
Góðar stundir

Ný stjórn og fínerí

22. júní 2010 klukkan 18:02

Halló, ég kann ekki að blogga. Á maður að vera formlegur, kæruleysislegur, fyndinn,l eða gagnrýninn? Allt er þetta skófla.

En þá að máli málanna. Eins og við vitum er komin ný fnjéllz í formannsstöðuna. Silja Björk er mun veita félaginu forystu á komandi skólaári, og tekur hún við bjöllunni af Grétu Kristínu sem var forystusauður þar áður.
þann 17. mai síðastliðinn var aðalfundur LMA og var þar kosin ný stjórn. Í henni eru Karen, Bryndís, Selma, Rakel, Berglaug og Sigurgeir. Athygli vekur að einn stjórnarmeðlimur er ekki með leggöng og er það bæting um einn síðan árið áður.
Frakkland er dottið út úr HM og nýja stjórnin og sú gamla hittust í listigarðinum þann 4. júní og borðuðu franska súkkulaðiköku sem fröken formaður galdraði fram. Símar hringdu endalaust og efst í huga allra var að helluleggja í tilefni prófaloka. Við vorum því sammála um að Silja væri klædd í stíl við fínu formannsbókina sína, skipuðum í embætti og Sigga Árdal deildi reynslusögum um hvernig er best að mála sig á stjórnarfundum.
Gjéllz reyndu síðan að halda annan fund á bíladögum en þar sem okkur Berglaugu vantaði, þ.e. aðal fólkið, gerum við ráð fyrir að ekkert merkilegt hafi gerst þar.

Annars bara ógó spenntó fyrir komandi vetri. Brainstorm í sumar að fjáröflunum, leikritum, sketchum og öllu sem okkur dettur í hug. Allar hugmyndir mjög vel þegnar. Réttur áskilinn til yfirdrulls á lélegum hugmyndum.

shit hvað ég er í miklum galsa. bæ

Leiktu Betur !

13. nóvember 2009 klukkan 13:06

Síðastliðinn mánudag var spunakvöldvaka á vegum LMA í Kvosinni þar sem að valið var í Leiktu Betur lið skólans. Sigurvegarar kvöldsins var liðið Sjávarútvegsráðherra en þeir krakkar sem unnu sér þátttökurétt fyrir MA á Leiktu Betur keppninni í rvk voru Gísli Björgin, Bjarki Kristjáns, Hrafnhildur Marta og Karen.
Dómarar á kvöldvökunni voru leikarar í LA og m.a. var Bryndís leikstjórinn okkar knái og Jón Gunnar sem að var leiðbeinandi á spunanámskeiðinu.

Mikið fjör var á kvöldvökunni og ágætis mæting, muninnTV var á svæðinu og hér : http://www.muninn.is/veftv/2009/11/10/lma-kvoldvaka-2/
má finna fréttina  á muninn.is og vefTV frá kvöldvökunni.

Á miðvikudaginn var síðan komið að því, menntskælingar flykktust í rútuna og héldu á stað suður yfir heiðar. Stemmingin í óperunni var geggjuð og voru 7 framhaldsskólar með lið í keppninni.  Jöfn inní 3 liða úrslit voru lið MR, MH og MA.
Stemmingin var orðin gífurleg.
Eftir úrslitin kom í ljós að MR var í þriðja sæti og MA og MH voru jöfn í fyrsta....
Bráðabani.
Noregur vs. Tyrkland í eurovision.

MH vann eftir bráðabana með norska eurovision lagið sitt og MA lenti í öðru sæti.

Liðið stóð sig gífurlega vel, enda er annað sæti frábært!
Viðóskum liðinu innilega til hamingju eins og allir ættu að gera.

Myndir koma fljótlega !



LMA félagar ath ! Munið æfinguna í G22 kl 16:05 í dag f. árshátíðina !!

Kærleikur
Stjórnin

p.s. Sigga Skrifaði

Nýjasta nýtt !!

08. nóvember 2009 klukkan 23:35

hæ hó hæ hó !

Fyrir alla þá sem misstu af löngu þegar við tilkynntum hvaða stykki vvið ætlum að setja upp á vorönninni....

LMA kynnir :

GRÆNJAXLANA !




Jááá ég man ekki eftir hvern það leikrit er... en það er allavegana góð tónlist í því :)


Einnig þá er spunanámskeiðið búið.
Mánudagskvöldið, annað kvöld, er LMA kvöldvaka kl. 20:00 í kvvosinni þar sem að verður Leiktu betur keppni og uppistand og eitthvað húllumhæ, einnig er á dagskránni að kynna leikritið grænjaxlana aðeins betur. Á kvöldvökunni verður valið í Leiktu Betur lið Menntaskólans og mun það lið fara suður og keppa fyrir hönd skólans.

Miðvikudaginn 11. nóv er Leiktu Betur keppnin í óperunni í RVK og verður farin ferð þangað með hóp af stuðningsmönnum og liðið okkar (sem verður valið annað kvöld) hvatt til dáða!

Stay tuned - það er allt að gerast núna !

kærleikur
Stjórnin


p.s. skrifað af vefsíðustjóra : Sigríði Árdal

LMA starf vetrarins hafiđ

19. október 2009 klukkan 14:59

Heil og Sæl aðdáendur góðir.

Síðan er komin á fullt skrið aftur eftir smá pásu og lagfæringar.
Það eru komnar inn nýjar myndir, update á LMA félögum og saga LMA er hérna til hliðar.
Nýja LMA logoið í hausnum hérna uppi hannaði Sindri Geir Óskarsson í 4. G.

LMA starfið er komið á fullt skrið, spunanámskeið í gangi og vert að minnast á það að kennari á því er Jón Gunnar, stofnandi Leiktu Betur á Íslandi og Gréta Kristín vores formaður !
Árshátíðaratriðið að vera komið á hreint hjá okkur í stjórninni og farið að auglýsa eftir fólki sem vill taka þátt í því.

Fjáröflunin hjá okkur, barnaleikritið, er komið á skrið og komnir leikendur í það og æfingar að fara að hefjast fljótlega.

LMA starfið í ár verður öflugt og fjölbreytt og frægðarsól LMA mun halda áfram að skína !

Á döfinni er Leiktu Betur sem verður 11. nóvember í Reykjavík, barnaleikritið, árshátíðaratriðið, trúðatækni námskeið, leikhúsförðun... og ég man ekki hvað meira er í boði því það er svo mikið.. reyndar að sjálfsögðu stóra stykkið á næstu önn og leiklistarnámskeið....

Ef þú ert ekki skráður í LMA skráðu þig þá núna !

Finndu okkur á göngunum eða sendu okkur email.

Kærleikur frá LMA

Á Döfinni

Áheyrnarprufur fyrir leikritiđ á nćstu önn verđa haldnar í byrjun nćstu viku

Könnun

Afhverju skráđir ţú ţig í LMA?

Leit